Ástaskásta
Fróðlegt og skemmtilegt
23.12.2007 15:26:39 / astagu

Gleðilega hátíð

Farin í jólafrí, óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, vonandi hafið þið það gott í faðmi fjölskyldu og vina og finnið jólafrið í hjartanu :haha:

Gleðileg jól :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.12.2007 11:35:50 / astagu

Aðventupælingar...

  Heil og sæl vinir og aðrir velunnarar, lítil hreyfing er á þessu bloggi mínu undanfarið, sem skýrist mestmegnis af því hversu yfirgripsmiklu og á stundum þrælerfiðu starfi ég gegni í augnablikinu. Heimavinnandi húsmæður í fullu starfi (24-7) eru duglegustu starfsmenn “ever” og eiga heiður skilinn fyrir óþakklátt starf sitt um aldirnar – ég tek hatt minn ofan fyrir formæðrum mínum, sem ráku stór heimili og héldu öllu og öllum hreinum, unnu allt á heimilinu frá grunni, hvort sem um var að ræða fatnað heimilisfólks, vinnslu matvæla, bakstur og svo ekki sé nú minnst á þvotta... Allt án nokkurra hjálpartækja eins og þvottavéla, ryksugna, uppþvottavéla, hrærivéla, pampers einnota bleyja, kjötborðum verslana, rafmagnseldavéla og ofna o.s.fr. o.s.fr.

Þrátt fyrir að starf húsmóðurinnar hafi breyst umtalsvert síðustu tvær aldirnar eða svo, er ekki þar með sagt að starfið hafi orðið minna umfangs. Í dag eru húsin stærri, dótið meira, börnin færri og þar með frekari...hehe:lol:, heimilismönnum hefur fækkað og þar með þeim sem hjálpa til við verkin... get haldið áfram endalaust í þessum pælingum! Þið sem þekkið mig eruð búin að átta ykkur á stöðunni – ein að fara yfir um á jólastressi, tvær vikur í jól og allt eftir, þrátt fyrir að vera heima allan daginn! Skil stundum ekki hvert dagurinn fór þegar ég í lok dags sest niður og reyni að átta mig á í hvað ég “eyði” öllum tímanum... og varla tími til að setjast niður og fá sér kaffibolla hvað þá meira, er ég þó með skipulagðari manneskjum sem ég þekki (þó ég segi sjálf frá...ehemm).

Jæja þar fór pásan, einn lítill stendur og vælir í fótunum á mér... skil ekki hvernig konur fóru að því að eiga 8-10 stykki hérna í den! 8|

Bið ykkur vel að lifa í bili, farið varlega í jólastressinu, ég hef það eftir áreiðanlegum heimildum að jólin komi þrátt fyrir allt, sama hversu mikið við teljum okkur þurfa að gera fyrst! Og kyssið mæður ykkar og knúsið næst þegar þið sjáið þær, þær eru mestu hetjur sem þið eigið nokkurn tíma eftir að kynnast. 

Over and out - Ástaskásta:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 15:27:44 / astagu

Haustið nálgast óðfluga...

Hellú esskurnar... kominn tími á smá pistil úr Westurbænum.

Sumarið hefur farið afar mjúkum höndum um familíuna, höfum notið góða veðursins (sem við erum nú að súpa seyðið af... fáum uppsafnaða rigningu síðustu 3 mánaða!), höfum verið að koma okkur fyrir í nýju íbúðinni, gengur hægt en gengur þó, enda þarf að sinna tveimur orkuboltum í hjáverkum.

Skelltum okkur hinn týpíska hringveg í sumarfríinu, stoppuðum í bústað á Akureyri og svo á Einarsstöðum (sem er rétt utan Egilsstaða fyrir þau ykkar sem fara aldrei austur fyrir Elliðaá...hehe8)) og höfðum gaman af að skoða landið, taka myndir og láta stimpla N1 vegabréfið okkar:lol: Sá 4 ára hafði verulega gaman af að fylgjast með hversu marga stimpla við værum búin að fá og hvaða “verðlaun” við ættum nú inni – samt voru stimplarnir sjálfir aðalatriðið!

Nú er lífið að komast aftur í skorður, eldri drengurinn byrjaður aftur á leikskólanum og hvorki meira né minna en hækkaður í tign, kominn á elstu deildina og ekkert smá stoltur af því afreki, enda ekkert smábarn lengur. Veit ekki hvort varð fegnara þegar sumarfríi lauk, drengurinn eða móðir hans, enda ekkert grín að deila athygli með yngri bróður sem er algerlega ófær um að bjarga sér um nokkurn hlut... og fannst þeim eldri ansi hallað á sinn hlut hehe (jújú maður getur hlegið að þessu eftirá;).

Svo fer nú að styttast í annan endann á fæðingarorlofinu, drengurinn orðinn rúmlega 8 mánaða og farinn að fullorðnast aðeins, situr eins og herforingi og er voða duglegur að leika sér á gólfinu eða í leikgrindinni sinni, svífur svo um íbúðina eins og stormsveipur í göngugrindinni þegar sá gállinn er á honum, en neitar alfarið að “moppa” gólfin fyrir móður sína, enda nær hann öllu sem hann þarf með því að teeeeyyygja sig vel...hehe.

Jæja nóg í bili, í húsmóðursstarfinu eru engar lögbundnar pásur...

Ástaskásta – over and out:haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 14:45:16 / astagu

Sumar...

Það er komið sumar, sól í heiði skín... eða nei, það snjóar enn! Hvað á þetta eiginlega að fyrirstilla? Og mín í löööngu sumarfríi, eða kannski ekki alveg í fríi... en samt í aðstöðu til að vera úti að vild og ýta kríli á undan sér í vagni – og þá langar mann bara ekkert til að fara út! Skrýtið hvernig hlutirnir æxlast stundum.

Er á kafi í kössum þessa dagana, undirbúum brottför héðan úr miðbænum, hinn helmingurinn vill bara vera í Vesturbæ, svo við fjárfestum í íbúð westast í Westurbæ, sjáum út á sundin blá út um eldhúsgluggann, KR í göngufæri, gerist víst varla betra – eða hvað...hehe8). Erum allavega sátt við kaupin og getum ekki beðið eftir að koma okkur fyrir á nýjum stað, sérstaklega húsmóðirin sem er alveg að koxa á núverandi staðsetningu. Daníel er þrælspenntur fyrir flutningum, heldur í hvert skipti sem leið liggur á nýja staðinn, að nú séum við loks að flytja endanlega og raðar í töskur því sem má ekki verða eftir...hehe. En ég held að hann sé farinn að fatta að það verður allt tekið með, enda búið að tyggja það vel í hann, svo hann er aðeins farinn að róast í því að bera dót á milli. Er þessa dagana að skipuleggja nýtt herbergi, búið að fjárfesta í nýju rúmi fyrir STÓRA stráka, alls ekki fyrir litla bræður, og herbergis-þemað verður drekar og kastalar. Hann er svo mikill skipuleggjari eins og móðir sín að hann er búinn að ákveða hvar hillur, dótakassar og annað verður staðsett í herberginu – og er ekki svo fjarri lagi, svo einhverjar hugmyndir verða ábyggilega nýttar.Arnar er ekki alveg eins hrifinn af þessu tímaleysi móður sinnar í að sinna sér, hann er bara látinn afskiptur á gólfinu ýmist á teppi eða í stól og sagt að hafa sig hægan...hehe nei ekki alveg, en samt maður þarf nú að pakka og gera ýmislegt (eins og að blogga...hehe) og barnið bara virðist lítið sem ekkert þurfa að sofa á daginn. Sefur sem betur fer ágætlega á nóttunni, þó hann vakni upp 1-3 sinnum og heimti snakk og smá spjall, fær nú stundum bara eitt stykki snuð í “hávaðaopið” og mamma nennir varla að opna augun...:^) Hann hefur nokkrum sinnum verið tekinn með á nýja staðinn og á þá að sofa í vagninum svo mamma geti tekið þátt í málningarvinnu og svoleiðis (enda ein af þeim sem treystir engum betur en sjálfri sér, sama hvert verkefnið er...hehe), en þá neitar hann yfirleitt að láta plata sig í svefn, enda spennandi að sjá hvað fer fram. Og svo er unginn auðvitað svo forvitinn að hann þarf að vita hverjir eru á staðnum og hvað hver er að gera, getur ekki einu sinni einbeitt sér að drykkju ef einhverjir tala saman í sama herbergi! En hann lætur nú ekki trufla sig ef hann er glorsoltinn....

Jæja unginn kallar, neitar að liggja á þessu leikteppi sínu lengur, heimtar snarl.

Over and out:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.04.2007 17:11:09 / astagu

Hva bara að koma páskar...

Hellú esskurnar mínar, væri nú synd að segja að frúin sé sterk í blogginu undanfarið... en það er bara svo mikið að gera á stóru heimili skal ég segja ykkur :lol:

Litli stubburinn dafnar vel sem fyrri daginn, og við erum auðvitað ákaflega þakklát fyrir það, maður má víst ekki taka því sem gefnu. En hann lætur nú alveg hafa fyrir sér, eins og stóri bróðir gerði (og gerir enn...) en þeir eru samt alveg ágætir báðir samt 8) Miklir húmoristar og hafa gaman af að vera til, leiðist alveg ógurlega stundum að hanga heima með mömmu sinni en eru alltaf eins og englar þegar við förum út úr húsi. Er það ekki bara eins og það á að vera?

Allavega er skírn yfirstaðin og nú stendur yfir undirbúningur fyrir 4 ára afmæli hjá stóra bróður, á morgun, og er að sjálfsögðu mikil spenna fyrir því. Sjóræningjaafmæli skal það vera og mamman gerir ráð fyrir látum í samræmi við tilefnið... viðkvæmir og aðrir heilsuveilir verða bara að halda sig fjarri...hehe.

Og þá er pásunni lokið að sinni... skyldan kallar - over and out :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 22:59:23 / astagu

Loksins...

Hellú allir 8)

Bara að benda ykkur á að loksins setti ég inn myndir af drengjunum, sá á tilkynningatöflunni frá BlogCentral að þeir eru búnir að bæta við myndaalbúmi í stillingar - algerir snillingar :haha:

Annars allt við það sama, lífið afar einfalt þessa dagana, snýst um að sinna þörfum barnanna og halda geðheilsunni þrátt fyrir lítinn svefn :lol:

Endilega njótið myndanna (enda með eindemum falleg börn, þó ég segi sjálf frá...hehe) - over and out ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 20:51:23 / astagu

Hátíðisdagar...

Jæja þá er frúin mætt aftur á svæðið, og orðin örlítið léttari á sér þar sem jólabarnið hefur litið dagsins ljós :lol:

Okkur skötuhjúum fæddist annar sonur þann 18. desember sl. kl. 2:21, og heilsast öllum vel. Sama uppskrift og síðast greinilega, því verður ekki neitað að það er óneitanlega svipur með þeim bræðrum og stærð við fæðingu nánast hin sama (munar 50 gr og 1,5 cm).

Höfum haft það gott um jólin saman “vísitölufjölskyldan” og verið í huggulegheitum heima við, vonum að gestgjafar jólaboðanna fyrirgefi okkur skrópið en lofum betrumbætingu á mætingu að ári! ;)

Litli stúfurinn dafnar vel og er duglegur að drekka mjólkina sína, og nú á 11. degi búinn að bæta við sig rúmum 200 g (sem er nú samt örugglega ekki metið svona eftir jólin...hehe). Enda mamman dugleg að blanda saman rjómaís og súkkulaði handa prinsinum sínum :haha: En samt allt í góðu hófi auðvitað.

Nú líður senn að áramótum, og þá er víst við hæfi að rifja upp atburði liðins árs... get afsakað mig með því að konur á meðgöngu missa flestar minnið (sjálfsagt leið náttúrunnar til að konur eignist fleiri en eitt barn...hehe), og nú þegar eru þjáningar fæðingarinnar farnar að dofna... svo ég ætla ekki að reyna að rifja eitt né neitt upp með ykkur! Þakka bara fyrir góðar stundir og óska ykkur öllum velfarnaðar á nýju ári.

Hafið það sem allra best – alltaf – borðið góðan mat og njótið hátíðisdaganna sem eftir eru og svo endum við þetta á einni góðri frá Hemma... veriði hress, bless.

Ástaskásta – over and out 8)














» 3 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 11:40:39 / astagu

föstudagur...

Föstudagurinn 13. í dag, margir hjátrúarfullir eru sjálfsagt afskaplega varkárir og þora jafnvel ekki úr húsi... þekki reyndar ekki marga þannig hehe. Var að hlusta á Ísland í bítið á leiðinni í vinnuna, þar voru þeir að tala um að í heiðni hefði þessi dagur verið álitinn sérstakur lukkudagur, svo við sem trúum rétt mátulega af öllu hljótum að vera í góðum málum. Eða hvað?! ;)

Tíminn flýgur áfram, verða komin jól fyrr en varir – í dag eru 72 dagar til jóla. Sem þýðir að áætlaður afhendingartími í jólabarnið er 74 dagar :D Eru komnar tæpar 30 vikur núna og gengur enn allt samkvæmt bókinni. Er reyndar að missa mig í óhollustu og nammi þessa dagana, greinilega lítill nammigrís á leiðinni..hehe, en reyni nú samt að hafa einhverja stjórn á mér (gengur misvel...:^)). En maður gerir sitt besta og reynir að halda sig við einhver skynsamleg mörk – án þess að tapa gleðinni, sem er ekki síður mikilvægt á þessum tímum 8)

Annars lítið að frétta, allt í gúddí bara eins og maðurinn sagði, svo ég bið bara að heilsa í bili og óska ykkur góðrar helgar– over and out :haha:






» 6 hafa sagt sína skoðun

27.09.2006 16:22:27 / astagu

...

Jæja ætli sé ekki kominn tími til að tjá sig aðeins um þjóðfélagsmálin...

Heitasta málefnið í dag er auðvitað “varnarsamningurinn”, sem er svo mikið leyndó að enginn má vita. Ætli það sé vegna þess að ráðamenn vilja ekki gefa upp hversu harkalega þeir létu taka sig í rassgatið?!... Mér finnst allavega alveg til háborinnar skammar hvernig þeir ætla að láta kanann komast upp með að yfirgefa varnarliðssvæðið án þess að ganga frá eftir sig. Alger þræls-hneigingar og rassasleikjuháttur!! Segi það og skrifa það. Halló hvor ber skarðari hlut frá borði, þeir pakka bara saman og láta sig hverfa – og við fáum náðarsamlegast að taka til og þrífa eftir þá, og fáum einhverjar handónýtar byggingar í staðinn sem við vitum ekkert hvað við eigum að gera með. HALLÓ!

Segi það svo sem ekki, kannski verður einhverjum störfum reddað í þrif og frágang – en þurfum við þá ekki að flytja inn erlent vinnuafl til þess? Ekki hafa íslendingar sótt svo stíft í slík störf – eða hvað?!

Nei við létum sko taka okkur all-svakalega þarna. Fyrsta sem mér datt í hug þegar ég heyrði fréttirnar var hvort þeir Geir Haarde og félagar hafi staðið og veifað eins og mörgæsirnar í myndinni Madagascar... “dúllur og krútt strákar, bara brosa og veifa...”

Áðan barst mér rafpóstur sem greinilega gengur hratt í gegnum ljósleiðarana þessa dagana, þar sem maður er beðinn að skrifa undir beiðnalista til að þrýsta á afríkuríki til að halda áfram einhverri barnahjálp (eitthvað sem til stendur að hætta sökum fjárskorts skildist mér). Frásagnir í þessum pósti vöktu svoleiðis viðbjóð að ég veit ekki hvort ég á eftir að ná mér. Þar er sagt frá 3 ára stúlku sem var nauðgað og misþyrmt af einhverjum hálfvita, sem nú er laus úr fangelsi. Einnig sagt frá öðru 9 mánaða stúlkubarni sem var nauðgað af 6 mönnum sem allir voru hiv-smitaðir. Þeir sem sagt trúa því þarna suður frá að eyðni læknist ef þeir hafa samræði við ungar óspjallaðar stúlkur – því yngri því betra! Ojbara ég bara fæ sting í hjartað og stóran kökk í hálsinn við tilhugsunina, hvað er að svona mönnum? Eru þeir virkilega svona hrikalega heimskir? Ég er að hugsa svo margt ógeðslega ljótt núna, að ég ætla ekki að setja það niður á prent...!!

Annars gengur bara fínt með bumbubúann, svo við snúum okkur að aðeins léttara tali, er að verða álíka framstæð og þegar ég var á steypinum með soninn... sumir segja að það sé merki um að lítil prinsessa sé á leiðinni, en kannski er það bara vegna þess að ég er ekki í jafn góðu formi núna...hehe it’s just all hanging out there J Enda alltaf sagt að fyrsta bumban sé nettust og svo fari þær stækkandi. Ég þakka bara fyrir að hafa rassinn í stærra lagi..hehe annars dytti ég bara fram fyrir mig J

Farin að finna fyrir góðum hreyfingum, stundum meira en góðu hófi gegnir... ætli þetta sé þá ekki bara lítil djassballetdrottning (eins og mamman..hehemm). En ég reyni að njóta þess bara, sérstaklega þar sem ég fann ekkert of mikið af hreyfingum á síðustu meðgöngu þar sem fylgjan var framan á þá. Og nú get ég ekki skrifað meira, er að pissa í mig...

Over and out – Ástaskásta










» 3 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 13:35:00 / astagu

For your info... ;)

Nú eru skilningarvit barnsins að vakna til lífsins. Eftir að það er fætt gæti það munað eftir lögunum sem þú ert að syngja fyrir það núna. Einhvern daginn þegar þú ert alveg vitlaus í skapinu er barnið þitt sama sinnis og sparkar allt hvað af tekur. Það er mögulegt að börn sem fæðast við 24 vikna meðgöngu geti lifað af fái þau notið umönnunar á nýburagjörgæslu en það er þó alls ekkert öruggt í þeim efnum.  Stærsta vandamálið er að lungun eru ekki nógu þroskuð og þess vegna þarf fyrirburinn aðstoð við öndun.  Barnið er ennþá mjög grannt en fer að bæta á sig úr þessu.  Það vegur nú um  630 grömm og lengd frá höfði að rófubeini er um 21 sm.

Bara svona í gamni :haha: leyfa ykkur að fylgjast með þróuninni. Get staðfest þetta með að barnið sparki allt hvað af tekur þegar ég er vitlaus í skapinu...ehemm enda eiga bóndinn og sonurinn afar bágt suma daga þegar gamla brýnir klærnar nánast að ástæðulausu...hehe:^) Svo er líka greinilegt að litla krílið er farið að heyra í gegnum bumbuna, því það verður allt vitlaust þegar stóri bróðir er að syngja hástöfum eða leika sér með látum (eins og nauðsynlegt þykir í sjóræningjaleik t.d.) ;)

Allt í fínu standi með aðlögun á nýja leikskólanum, drengurinn hæstánægður og þá eru allir ánægðir. Enda sjóræningjaskip af bestu gerð á útisvæðinu á nýja staðnum, gerist ekki mikið betra en það :haha:

Bið að heilsa í bili, over and out 8)


» 9 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 15:54:36 / astagu

Nýtt nýtt...hehe

Jæja jæja jæja... eftir *hóst* fjölda áskorana, kemur smá pistill úr Vesturbænum.

Allt gott að frétta af okkur familíunni, búin að fara í sumarfrí sem var bara alltof stutt. Drengurinn er reyndar enn í fríi, og þarf að púsla pössunum fyrir hann í 2 vikur þar sem hann kemst ekki inná nýja leikskólann fyrr en undir mánaðarmót. Hann verður “vonandi” orðinn svo þreyttur á þessu rápi milli fjölskyldumeðlima að aðlögun á nýjum stað skotgengur (krossum puttana uppá það :lol: ). Annars verður auðvitað að gefa þessum greyjum tíma til að aðlagast vel á sínum hraða, borgar sig uppá seinni tíma.

Í sumarfríinu fórum við að sjálfsögðu hinn dæmigerða “hring” um Ísland, erum svo þjóðleg og frændrækin... hehe. Ferðin var tekin á methraða, 6 dagar og 3 gististaðir, geri aðrir betur. Vorum öll úttauguð og hrakin við heimkomuna... nei kannski ekki alveg, en ég held við tökum annað hvort fleiri daga í ferðina næst eða stoppum á færri stöðum takk! Nú svo skelltum við okkur til Köben í viku. Vorum í orlofsíbúð í miðbænum, sem var mjög fínt, nema kom okkur á óvart hversu rosalega danir eru stífir á bílastæðatakmörkunum... meira að segja í mollinu Fisketorvet var hámark 3 tímar í stæði! Halló færi einhver að fara eftir slíku í Kringlunni eða Smáralindinni, held ekki bara. Er ekki einmitt tilgangurinn að halda fólki eins lengi og hægt er, svo það hafi tíma til að fara í sem flestar verslanir og eyða peningum. Urðum einmitt vitni að einum sem fékk svimandi háa sekt í mollinu, kom sem sagt 10-15 mín seinna en klukkan sagði til um – hann var náttúrulega án þess að ýkja kolbrjálaður. Stöðumælavörðurinn stóð bara fastur á sínu, 10 mín eru jú 10 mín...hehe, þrátt fyrir að blekið á sektinni væri varla þornað. Þó svo ég skilji nú ekki mikið í dönskunni... hehe þá skildi ég allt sem fór þeim á milli 8)

Nú svo auðvitað stærstu fréttirnar – litla familían okkar fer stækkandi í lok ársins. Erum orðin ægilega sæt og pattaraleg með bumbu sem fer stækkandi dag frá degi...hehe. Áætlaður dagur er 26. desember og ég vona bara að ég nái að vera heima um jólin með strákunum mínum, annars er litla dúllan auðvitað velkomin þegar hún sjálf ákveður (og þá fékk ég spark til staðfestingar :haha: ).

Verð að hætta núna, endilega verið óspör á skrif í gestabók og athugasemdir.

Yfir og út - Ástaskásta ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 14:36:29 / astagu

Gleðilegt sumar!

Gleðilegt sumar allir – trúi því að sumarið sé loks komið, enda veðrið alveg dásamlegt í augnablikinu... best að vera ekkert að hugsa fram á við og spá í veðurspánni næstu daga, njótum bara ;)

Ég er búin að vera alveg hrikalega léleg í blogginu undanfarið. Bara búið að vera alveg brjálað að gera í hinu og þessu og svo var kominn smá leiði í mann líka, þ.e. bloggleiði... :^)

Þið hafið vonandi haft það fínt um páskana... ég veit það eru liðnar 2 vikur síðan..hehe, en við höfðum það bara bærilegt líka takk. Héldum uppá 3 ára afmæli einkasonarins viku fyrir páska og það tók á að koma öllu í skikkanlegt horf í íbúðinni fyrir það, svo við notuðum þessa fimm daga til að slaka bara á og hafa það næs saman. Kíktum aðeins í í Húsdýragarðinn og spókuðum okkur, klikkar aldrei. Annars var bara legið í sófanum og súkkulaði étið útí eitt... ehemm eða þannig sko.

Svo hef ég lítið fylgst með fréttum að undanförnu, svo það er ekki mikið sem mér finnst þörf á að tjá mig um... nema auðvitað hringavitleysan með Baug! Kemst nú ekki nokkur maður hjá því að heyra þá umræðu. Ég bara spyr, hversu lengi á þessi saksóknari að fá að bruðla með peningana okkar?! Hefur maðurinn ekkert annað að gera 8| Alveg merkilegt! Allir sýknaðir af þessum kröfum sem þó komust í dómssal frá síðustu tilraun... en nei maðurinn ætlar ekkert að gefast upp, “glæpamönnunum” skal hann ná. Verður spennandi (NOT) að sjá  hversu marga milljarða þessi “hringur” eigi eftir að kosta ríkið og okkur.

En ég ætla nú ekki að eyða meira plássi hér að síðunni í þetta mál...hehe.

Nóg í bili – ekkert búið að segja svo sem en samt.... over and out :haha:












» 7 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 09:24:16 / astagu

...öö nú þið eruð enn hér!

Sæl esskurnar - hélduð þið að ég væri búin að yfirgefa ykkur? :S Neibb ekki alveg, er bara búin að vera alveg á fullu undanfarið... eða allavega reyna það! Erum enn að koma okkur fyrir á nýja staðnum, gengur hægt en sígandi, aðal vandinn er sá að engin geymsla fylgir íbúðinni og það tekur tíma að fara í gegnum alls kyns kassa og drasl sem hefur safnað ryki í mörg ár... ef þið vitið um góða geymsluleigu endilega segja frá :lol:

Svo hefur ástandið í vinnunni verið eitthvað á þessa leið... svo maður hefur bara þurft að taka á stóra sínum til að muna eftir að anda inn - anda út... hehe.

Að öðru leyti bara allt gott af okkur að frétta, annars snýst lífið bara um vinna-sofa-éta-opnakassa-lokakassa-hendakassa...hehe:haha:

Heyri í ykkur síðar - over and out ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 10:55:52 / astagu

Til hamingju Ísland með að ég fæddist hér...

Til hamingju Ísland! Þá er það ljóst, okkar fulltrúi í Júróvísjón í ár verður hin gullfallega og hæfileikaríka Silvía Nótt 8) Að sjálfsögðu er þjóðin klofin í skoðun sinni á dömunni, ætli það sé ekki helmingur sem elskar hana – hinir þola hana ekki og skilja ekki út á hvað þessi fíflaskapur gengur...

En atkvæðin ljúga ekki – ríflega 70 þúsund atkvæði, og meira en helmingi fleiri en Regína náði að fiska inn með sinni frábæru frammistöðu. Og þriðja sætinu náði Friðrik Ómar, sem mér finnst alveg frábær. Ekki bara góður söngvari, heldur alveg frábær skemmtikraftur – hann hefur svo gaman af því sem hann er að gera, og nær að skila því til áhorfenda. Ég sá hann um daginn í þættinum hjá Hemma Gunn., og “uppgötvaði” hann eiginlega í fyrsta sinn þá, stóð sjálfa mig að því að brosa bara allan þáttinn þetta var svo gaman...thíhí :lol: Ég held að hann hefði staðið sig frábærlega útí Aþenu, ef hann hefði fengið tækifæri til... en hann er ungur og við eigum eftir að sjá helling af honum á komandi árum.

En svo að alvöru lífsins – við fjölskyldan fluttum búferlum um helgina. Fjölskyldu og vinum var smalað saman á laugardagsmorgun, drengurinn sendur í heimsókn og svo var hafist handa. Gekk þetta bæði hratt og vel, þrátt fyrir rigningarskúr rétt á meðan flutningabíllinn var fermdur og affermdur... létum það ekki á okkur fá, þó maður bölvaði pínu í bringuna á sér... :^) Búslóðin allavega komst heilu og höldnu á nýjan áfangastað, nú tekur við ærið verkefni að koma öllu fyrir, sortera og losa sig við það sem ekki þarf að geyma... alveg ótrúlegt hvað maður á af alls kyns óþarfa (sem maður man ekki einu sinni eftir að eignast...). Látið ykkur ekki koma á óvart, ef þið rekist á dót sem þið kannist við í Kolaportinu næstu vikurnar...hehe :haha:

Verð nú líka að minnast örlítið á þáttinn Kompás, sem var sýndur í opinni dagskrá á stöð 2 í gærkvöldi... þar var verið að tala um barnaníðinga og hvernig þeir nálgast unga krakka á spjallrásum og bloggsíðum eins og þessum! ARG OG LÆTI :klikk:... kemst ekki yfir það að þessi djö... sori skuli endalaust fyrirfinnast á meðal okkar.

Þeir sem sagt settu upp tálbeitur fyrir perrana á einhverjar auglýsingasíður, þar sem fimmtugir perrar voru að hafa samband við “þrettán ára” með náin kynni í huga!! Á tveim sólarhringum voru rúmlega áttatíu menn sem svöruðu auglýsingunni þeirra, af þeim fjórum sem þeir völdu, voru allir tilbúnir að hitta ófermda stúlkuna :evil: Og voru sem sagt böstaðir af þeim Kompás mönnum – ég vona bara að þetta fæli einhverja perrana frá netinu...  Pælið hvað þetta lið er sjúkt, gamlir sjúkir pervertar sem vilja vera með 12-13 ára stúlkum... en þegar þeir voru böstaðir reyndu sumir að ljúga því til um að vera í “rannsóknar- og ritstörfum” sjálfir... alveg hundskömmuðust sín!! Sem segir að þeir vita alveg að þetta er ekki rétt. Þrátt fyrir að þeir Kompás-menn hafi sýnt þeim þá tillitssemi að blörra myndirnar... fyndist mér nú bara gott á þá ef þeirra nánustu hafa þekkt þá og vonandi ganga á þá um að leita sér hjálpar við þessum ógeðslega perraskap!!!

Ástaskásta í ógeðs-kasti kveður að sinni – over and out :S


» 9 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 16:13:32 / astagu

sick of this...

Drengurinn er rétt að verða frískur, og þá leggst ég sjálf í einhverja hel..... pest sjálf!:(  Þetta fer að verða pínu þreytandi hérna hjá okkur, liggjum til skiptis í þrálátum pestum... ætli við séum með einhverja "húsasótt"...?

Við sem erum dugleg við að raða í okkur vítamínum, borðum mikið af grænmeti og ávöxtum, reynum að velja hollt og gott í matinn og fara vel með okkur... kann einhver önnur og betri ráð? Allar ráðleggingar vel þegnar - psst þetta fer nefnilega alveg með karríerinn hjá manni :S

Over and out- Ástaskásta hundveik.. og hundleið á því!


» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10